REDKEN fagnar 50 ára afmæli sínu á þessu ári,
á árinu verður boðið upp á margskonar
tilboð og viðburði til að fagna stórafmælinu með viðskiptavinum okkar.

SAGA REDKEN Í 50 ÁR.
Redken rannsóknarstofurnar voru stofnaðar árið 1960, fyrirtækið er byggt upp frá
innblæstri og hugsjónasemi hinnar stórkostlegu leikkonu Paulu Kent.
Paula var leikkona og skipti oft um stíl og í hár hennar notaðar margar hárvörur,
en það fór hræðilega með hár hennar þar sem það var mjög viðkvæmt sem og hún var
með viðkvæma húð. Það pirraði hana mjög að engin gat úskýrt fyrir henni hvers
vegna vörurnar sem væri verið að nota í hár hennar færu svona illa í hana.
Neiðin kennir naktri konu að spinna og því byrjaði hún Paula að þróa hárvörur með hársnyrtum
til að þróa og gera fólki kleift að fá lúxus hárvörur sem ná hámarks árangri en fara vel með hárið.
Paula Kent og hárgreiðslumaðurinn Jheri Redding (nöfnin sett saman skapa REDKEN nafnið)
byrjuðu með 3 vörur og frábært menntunarkerfi fyrir hársnyrta um efnasamsetningu
hársins og húðarinnar. Formúlurnar voru þróaðar með hliðsjón af þessum þrem atriðum:
- Prótín tæknin (Þar sem hárið er uppbyggt mestmegnir úr prótíni)
- Sýrustig pH 4.5-5.5, sem er það sama og náttúrulegt sýrustig hárs og húðar.
- Vörur sem er einungis hægt að nálgast og verlsa hjá fagfólki og á stofum.
Þegar árið 1965 gekk í garð átti Paula Kent allan hlut rannsóknastofanna sem
staðsettar voru í Californiu.
1970 - 1980 var REDKEN fyrirtækið leiðtogi í vöruþróun og tæknilegri
samsetningu vara bæði í Bandríkjunum og erlendis.
Árið 1993 keypti snyrtivöru risinn L´Oreal REDKEN og núna eru höfuðstöðvar
þeirra á 5th Avenue í New York.
Í dag eru REDKEN fremstir í heimi í hárvörum og þjónustu.
Fyrirtækið er fullt af hæfaleikariku fólki, sterkum samstarfaðilum sem eru hárgreiðslufólk
á heimsmælikvarða, leggja mesta áherslu á vöruþróun og rannsóknir.
Hægt er að nálgast REDKEN vörurnar á stofum í yfir 50 löndum.
FEGURÐ SEM BYGGÐ ER UPP Á VÍSINDUM.
Í byrjun 1960 komst REDKEN á kortið með því að kynna til sögunar prótín innihald í vörum þróað
útfrá þeirri staðreynd að hárið er að mestu gert úr prótíni og getur dregið í sig prótín úr vörum.
REDKEN þróaði vörur með prótíni Fagfólk gat loksins notað vöru sem nærði hárið innan
frá og í lengri tíma frekar en að fela aðeins skemmdirnar.
REDKEN og framtíðin.....
REDKEN helgar sig að því að vera í fremstu röð í rannsóknum og vísindalega þróuðum vörum
til að sjá heimssamfélaginu fyrir, samhliða tískustraumum, götutísku og nýtískulegs hárs
þurfum við alltaf að bæta okkur og þróast fram á við.